Allan Busk kemur til Íslands
Yfirþjálfari og stofnandi Sportkarate-stílsins í heiminum mun koma til Íslands n.k. helgi og kíkja á nýja, glæsilega húsnæði okkar og hjálpa okkur við að taka það formlega í notkun.
Í því tilefni verða haldnar æfingar fyrir lengra komna sem og skemmtiæfing og opnunarhátið fyrir alla.
Laugardagur 22. janúar:
9:00-10:30 Elite-æfing fyrir keppnisfólk.
10:30-11:30 10-15 ára lengra komin.
12:00-13:00 Skemmtiæfing fyrir alla fjölskylduna.
13:00-15:00 Léttar veitingar.
15:00-16:30 Elite-æfing fyrir keppnisfólk.
Sunnudagur 23. janúar:
9:00-10:30 Elite-æfing fyrir keppnisfólk.
Skemmtiæfingin verður í mjög léttu sniði og er ætluð öllum, ungum sem gömlum, reyndum og óreyndum. Hún verður tæp klukkustund og strax á eftir verður boðið uppá léttar veitingar.
Iðkendur úr öðrum félögum eru velkomnir á æfingarnar en það mun kosta 1.500 kr. pr. æfingu fyrir þá (skemmtiæfingin er ókeypis). Tekið er við greiðslum áður en æfingar hefjast (engir posar á staðnum).
Við vonumst til að sjá þig og þína fjölskyldu og eiga skemmtilegan dag með okkur.
SPORTKARATE
Gætum öryggis – Sýnum virðingu – Verum vinir