Mánudaginn 11. apríl munum við halda páskabingó þar sem fjöldi veglegra vinninga verða í boði. Bingóið verður haldið í Fylkis-Selinu (æfingarsalnum okkar) og hefst kl. 19.00.
Páskabingóið er fjáröflun eldri krakkana fyrir æfinga- og keppnisferð í lok ágúst á þessu ári til Danmerkur.
Það eru allir velkomnir á páskabingóið og endilega komið líka með afa, ömmur, frændur og frænkur. Því fleiri því skemmtilegra. Bingóspjöldin verða seld á vægu verði og það verður fullt af flottum vinningum.
Þau sem ætla með okkur út og ætla sér að fá úr bingósjóðnum er skylt að koma með tvo vinninga á haus.
Veitingasala verður á staðnum með léttar veitingar á vægu verði.
Vonumst til að sjá sem flesta