14/04/2011
NM í Karate
Um næstu helgi fer fram Norðurlandameistaramótið í karate sem haldið er í Tampere, Finnlandi. Ísland sendir landslið sitt og eru 12 keppendur með í för, bæði í kata og kumite. Norðurlandamótið er mjög sterkt í ár, yfir 170 keppendur skráðir frá öllum norðurlöndunum auk Eistlands og Lettlands, sem er boðið að taka þátt í mótinu. Í gegnum tíðina hefur Ísland verið að ná ágætis árangri og í fyrra fékk Ísland 1 gull og 2 brons, er Jóhannes Gauti Óttarsson varð Norðurlandameistari 14-15 ára unglinga í kumite. Íslenska landsliðið hefur verið að ná góðum árangri erlendis í vetur og kom með 9 verðlaun frá hinu firnasterka Opna Sænska meistaramóti sem haldið var í Malmö, Svíþjóð, nú í marsmánuði. Landsliðsþjálfarar eru Andri Sveinsson, Kumite, og Magnús Kr. Eyjólfsson, Kata. Auk þeirra fara 3 dómarar og 4 liðsstjórar með hópnum. Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Arnór Ingi Sigurðsson, Kumite Senior -75 kg Kristján Ó. Davíðsson, Kumite Senior -75 kg Jóhannes Gauti Óttarsson, Kumite Junior -68 kg Ragnar Eyþórsson, Kumite Junior -76 kg Heiðar Benediktsson, Kumite Cadet -63 kg Kristján Helgi Carrasco, Kata Senior Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Kata Senior Birkir Indriðason, Kata Junior Elías Snorrason, Kata Junior Kristín Magnúsdóttir, Kata Junior Svana Katla Þorsteinsdóttir, Kata Junior Davíð Freyr Guðjónsson, Kata cadet Heiðar Benediktsson, Kata cadet
|