Heimasíða fyrir æfingabúðirnar er loksins kominn upp en þar er að finna allar nánari upplýsingar:
www.sportskaratecamp.com . Nú er aðeins 1,5 mánuður til stefnu og því þurfa allir þeir sem að ætla sér út að fara að spíta aðeins í lófana og dusta rykið af hófunum. Í næstu viku byrjum við að æfa 4x í viku, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17.30. Þetta eru skylduæfingar fyrir alla þá sem eru að fara út en allir 12 ára og eldri eru velkomnir á æfingarnar. Við ætlum að sýna þessum baunum hversu megnugur litli íslendingurinn er.