Bikarmót 1
Fyrsta bikarmótið í mótaröð vetrarins fer fram næstkomandi sunnudag (16/10). Mótið verður haldið í Smáranum og hefst mótið kl. 9:30 og eru mótslok áætluð fyrir kl. 12 en þá hefst Bushidomótið (sjá að neðan). Keppt er í kata og kumite í karla- og kvennaflokkum og er lágmarksaldur keppenda 16 ár (m.v. fæðingarár).
BUSHIDO-mót 1
Fyrsta mótið í BUSHIDO mótaröð vetrarins verður haldið í Smáranum Kópavogi, sunnudaginn 16. október. Mótaröðin er fyrir keppendur 12 - 17 ára og er miðað við fæðingarár í upphafi keppnistímabils, þ.e. keppendur fæddir 1999-1994 geta tekið þátt. Mótið hefst kl. 12:00 að loknu Bikarmóti sem fram fer um morguninn. Áætlað er að mótinu verði lokið kl. 17:00 en það tekur samt mið af keppendafjölda.
Bushido gefur stigahæstu einstaklingunum í öllum flokkum verðlaun í lok mótaraðarinnar. Einn heppinn keppandi verður dreginn út úr hópi þeirra sem taka þátt í öllum þremur mótunum og hlýtur BUDO NORD karategalla af flottustu gerð!
Mætum og styðjum okkar fólk til dáða.
Áfram Sportkarate!!