Við munum halda fyrsta innanfélagsmót vetrarins n.k. miðvikudag (26/10). Þetta mót er opið öllum okkar félagsmönnum sem hafa æft lengur en eina önn.
Mótið hefst kl. 17.00 en mæting og skráning kl. 16.45.
Það kostar ekkert að taka þátt og allir fá verðlaunapening í lokin sem og eitthvað sætt undir tönn.
Áætluð mótslok eru kl. 19.00
Foreldrar og aðrir eru velkomnir að koma og horfa á.