Fylkir Open
Verður haldið mánudaginn 28. nóvember kl. 17-19. Fáum gestafélögin Fjölni og Aftureldingu til að taka þátt með okkur.
Þátttaka er ókeypis og verðlaun í boði.
Gráðun
Gráðun verður haldin laugardaginn 10. desember. Dagskráin er sem hér segir:
Kl. 10.00-11.00 Þrekpróf fyrir alla 12 ára og eldri
Kl. 11.15-12.15 Börn byrjendur
Kl. 13.00-14.00 6-9 ára
Kl. 14.20-15.20 10-15 ára
Jólaball
Hið árlega jólaball verður haldið í hátíðarsal Fylkishallar og hefst kl. 18.00 og stendur til kl. 20.00. Allir hvattir til að taka fjölskylduna með einnig afa og ömmur. Góðir gestir láta sjá sig.
Fyrstu æfingar eftir áramót
Fyrstu æfingar eftir jólafrí hefjast mánudaginn 9. janúar samkvæmt stundarskrá.
Athugið þó að mini karate mun hefjast laugardaginn 14. janúar.
Hvetjum alla til að fylgjast vel með á heimasíðu okkar www.sportkarate.is
Sportkarate vill óska öllum sínum iðkendum og aðstandendum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hlökkum til að sjá ykkur á nýjan leik 2012.