Hann var hálf þreytulegur en fullur tilhlökkunnar hópurinn sem var mættur uppí flugstöð Leifs Eiríkssonar kl. 6 miðvikudagsmorguninn 24. ágúst 2011. Förinni var haldið til Álaborgar í æfingar- og keppnisbúðir á vegum Sportkarate.dk stofnanda Sportkarate stílsins. En sá stíll var fyrst stofnaður í Álaborg 2004 af bræðrunum Allan og Tommy Busk ásamt Thomas Bjuring.
Við vorum alls 21 manns frá Íslandi allt frá 8-18 ára gömlum keppendum og svo fimm vaskir liðstjórar og foreldrar.
Við lentum tæpum þremur klukkustundum seinna á Álaborgar flugvelli í ágætis síðsumars blíðu. Framundan var fyrsta æfing ferðarinnar sem síðan myndi ná hápunkti yfir helgina þar sem stefnan var sett á 100 frjálsa bardaga á mann á 2 dögum. Til samanburðar þá fær maður á bilinu 4-7 bardaga á hefðbundnu móti. Það var því nokkuð ljóst að verðugt verkefni var framundan. Yfir 100 börn frá fjórum löndum tóku þátt í æfingarbúðunum á aldrinum 8-21 árs.
Sportskarate.dk er tiltölulega nýflutt í nýtt og glæsilegt húsnæði rétt eins og við. Æfingaraðstaða Sportskarate.dk er með óhefðbundnara sniði þar sem hún er staðsett á 9. hæð í gömlu uppgerðu orkuveri Álaborgar. En nú sinnir það hlutverki menningar, listar og íþrótta. Við hjá Fylki getum þó montað okkur af því að við erum með mun stærri og flottari aðstöðu í Fylkisselinu heldur en þeir í Danmörku. Í raun er óhætt að fullyrða að æfingaraðstaða okkar er sú besta í allri N-Evrópu og þótt víðar væri leitað.
En aftur til Álaborgar. Þótt þetta hafi verið æfingarferð þá gáfum við okkur líka tíma til að njóta lífsins aðeins og njóta þess sem að Álaborg hefur að bjóða. Við kíktum í stórglæsilegan dýragarð Álaborgar. Kíktum í keilu. Heimsóttum stóra sundhöll þar sem að stökkbretti vakti mikla lukku og var einnig valdur að mörgum rjóðum mögum. Fórum í Limbó keppni og ekki má gleyma óborgaralegum verslunarferðum í H&M. Álaborg hefur einar fjórar H&M verslanir.
Þegar lent var aftur á Keflavíkurflugvelli þann 31. ágúst var mannskapurinn ákaflega sáttur með einstaklega vel heppnaða ferð. Einnig áttu margir erfitt með gang þar sem að mikið álag hafði verið á fótum eftir að vera búin að hoppa á tásunum stanslaust í heila viku.
Þessi ferð veittu okkur mikið forskot á komandi keppnistímabil. Það sýndi sig best á Íslandsmeistarmóti unglinga, 12-18 ára, í lok októbermánaðar þar sem að við gerðum okkur lítið fyrir og unnum mótið á heildarstigum félaga fimmta árið í röð. Alls fengum við fimm íslandsmeistara af átta mögulegum.
Þessi nýja frábæra aðstaða ásamt dugmiklum þjálfurum og aðstandendum hefur gert karatedeild Fylkis eitt fremsta karatefélag á Íslandi í dag. Andi félagsins lýsir sér best í einkunnarorðum þess: Öryggi – Virðing - Vinir.
Andri Sveinsson
Karateþjálfari