Foreldraæfing
3. febrúar kl. 18.00
Sérstök foreldraæfing verður haldin föstudaginn 3. febrúar kl. 18.00-19.00. Við bjóðum alla foreldra og systkini sérstaklega velkomin að koma og æfa með börnunum sínum og kynna sér betur þessa frábæru íþrótt.
Ekki er krafist mikils annars en að mæta í íþróttabuxum og stuttermabol. Æfingin verður með léttara móti þannig að hún mun henta fyrir alla.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Innanhúsmót
10. febrúar kl. 17.00
Fyrir alla iðkendur Sportkarate sem hafa æft lengur en heila önn.
Mæting og skráning kl. 16.45.
Áætluð mótslok kl. 19.00
Foreldrar og aðrir velkomnir að horfa á.
Þátttaka ókeypis.