4 keppendur fóru frá Karatedeild Fylkis á Norðurlandameistaramótið sem haldið var í Svíþjóð.
Gekk þeim öllum mjög vel á mótinu og náðu þau að landa 2 bronsverðlaunum.
Helga Kristín Ingolfsdóttir 3 sæti í cadet -54 kg.
Jóhannes Gauti Óttarsson 3 sæti junior -76kg.
Elías Guðni Guðnason og Ólafur Engilbert Árnason kepptu báðir um 3 sæti Elías í junior -68 kg og Ólafur í cadet -63 kg
en þeim tókst ekki að landa verðlaunum í þetta skiptið en stóðu sig frábærlega engu að síður.
Alls voru 14 keppendur frá Íslandi og náði hópurinn samtals 5 bronsum og 1 gulli í hópkata.
Við óskum öllum til hamingju með frábæran árangur.
Á mynd frá vinstri:
Pétur þjálfar, Ólafur, Helga, Jóhannes, Elías, Guðni Már þjálfari.