Nú í ár er stefnan sett á að fara í æfingarbúðir til Álaborgar í Danmörku eins og fyrri ár. Æfingarbúðirnar eru haldnar síðustu helgina í ágúst, 24-26 ágúst, í Nibe rétt fyrir utan Álaborg. Stefnan er að fara út á miðvikudegi (22/8) og koma heim á mánudegi (27/8).
Allir þeir sem eru 12 ára á árinu og eldri eru velkomnir að koma með án forráðamanna. Hinsvegar geta börn allt niðrí 10 ára aldur komið með ef að forráðamenn fylgja barninu sínu.
En allt kostar þetta og áætlaður kostnaður er:
- Flug: 33.800 kr.
- Rúta frá og til Billund: 15.000 kr.
- Æfingarbúðir (með fæði yfir helgina): 16.000 kr.
- Uppihald og fæði aðra daga: Ca. 15-20.000 kr.
Því má áætla að þetta verði um 90-100.000 kr. í heildina.
Stefnt er að því að hafa fjáraflanir og mun Jackie sjá um og halda utan um þær ásamt því að veita nánari upplýsingar. Vinsamlegast hafið samband við hana í tölvupósti jacqueline.michelle.becker@gmail.com
Einnig er hægt að hafa samband við Andra og Pétur, andri@sportkarate.is og petur@sportkarate.is.
Staðfesta þarf fyrir 27. apríl n.k. þar sem við höfum frátekin flugsæti fram að þessum tíma á þessu verði. Eftir það er ekki hægt að lofa þessu verði.