Föstudaginn n.k. fáum við til okkar afar góðan og sérstakan gest. Yfirþjálfari okkar
Allan Busk kemur til okkar og verður með æfingar á föstudaginn kl. 20.00 og svo aftur á sunnudaginn kl. 9.00. Æfingarnar eru opnar öllum 12 ára og eldri. Fyrir aðra en Fylkismenn kostar æfingin 1.000 kr. en báðar kosta 1.500 kr. Vonumst til að sjá sem flesta.
Svo á mánudaginn verður 45 ára afmælishátíð Fylkis haldin hátíðleg. Það verður opið hús hjá okkur kl. 13.00. Þar verður sprell og veitingar á boðstólnum.
Sjáumst hress.