02/10/2012
Fjölskylduæfing
Næstkomandi föstudag, 5. október kl. 18, ætlum við að vera með sérstaka fjölskylduæfingu þar sem við bjóðum foreldrum og systkinum að koma að æfa með iðkendum okkar.
Æfingin verður með léttara móti þannig að allir eiga að geta tekið þátt. Nóg er að mæta í íþróttabuxum og stuttermabol.
Síðast var frábær mæting og allir skemmtu sér vel og vonumst við til að það verði ekki síðri þátttaka í þetta skiptið.
|