Næstkomandi laugardag 8. desember verður haldið mót fyrir alla 12 ára og yngri sem hafa æft í meira en önn (þ.e. ekki fyrir þá sem byrjuðu í haust). Mótið byrjar kl. 10 en æskilegt er að keppendur séu komnir a.m.k. 15 mín fyrr. Skráning á mótið fer fram annað hvort á Facebook síðu deildarinnar http://www.facebook.com/sportkarate.iceland eða með því að senda póst á deildina á karate@sportkarate.is Nóg er að tilgreina nafn og afmælisdag. Þátttökugjald á mótið er 1000 kr.
Jólaball Sportkarate verður haldið í Fylkishöll þann 12. des kl. 18-20. Þar verður boðið upp á smákökur og drykki og mikið stuð. Svo er ekkert ólíklegt að óvæntir gestir líti við hjá okkur.
Yngri hóparnir fara í jólafrí eftir þessa viku, þ.e. síðasta æfing verður þann 6. des. Við ætlum svo að byrja aftur samkvæmt stundaskrá þann 7. janúar 2013. Elsti hópurinn (12 ára+) byrjar þó fyrr út af æfingabúðum eða 2. jan.