05/05/2014
Gráðun 10.05.2014
Gráðun fer fram laugardaginn 10. maí n.k. fyrir alla barnahópa.
Dagskráin er eftirfarandi:
9:00-10:00 Þrekpróf fyrir alla 12 ára og eldri
10:00-11:00 Börn byrjendur
11:15-12:15 7-9 ára
13:00-14:00 10-12 ára
Minnum á að aðeins þau börn sem hafa gengið frá greiðslu æfingargjalda fá að taka gráðun.
Vorhátíð kl. 15.00
Strax að lokinni gráðun höldum við smá vorhátíð til að enda veturinn með stæl. Við munum grilla pylsur og bralla fleira skemmtilegt saman. Öll fjölskyldan velkomin.
Æfingar munu síðan hefjast aftur í haust og biðjum við fólk að fylgjast með á heimasíðu okkar www.sportkarate.is þegar nær dregur.
Við óskum þér og þínum gleðilegs sumars og vonumst til að sjá sem flesta aftur í haust.
|